Aftanroði og Dagrenning
á sýningunni Umhverfing5 í Gömlubúð, Svavarssafni, Höfn Hornafirði og á afmælissýningu Textílfélagsins á Hlöðuloftinu,Korpúlfsstöðum. Verkin samanstanda af ull, frauðkúlum og vír.
Ég filta ull um frauðkúlurnar og vef þær síðan saman með vír og móta í lengjur. Síðan laga þær sig að hvaða sýningarrými sem er.